LA SIESTA Barnahengirúm

kr. 18.500kr. 28.900

Barnahengirúmin frá La Siesta koma í tveim stærðum, Moki og Moki Max. Moki er ætlað börnum 3-12 ára og þolir allt að 80kg. Minnsta fjarlægð milli festinga er 200 cm og í 120 cm hæð. Heildarmál á hengirúminu eru 210 x 110 cm. Moki Max er ætlað 3-99 ára og þolir allt að 160 kg. Minnsta fjarlægð milli festinga er 360 cm og í 180 cm hæð. Heildarmál á hengirúminu eru 350 x 160 cm.

Barnahengirúmin eru úr lífrænni bómull og eru framleidd í Indlandi. Með þeim fylgja MultiSpot festingar sem einfaldar uppsetningu og SmartLock öryggiskrókur sem auðveldar hæðastillingu.

Þvo má hengirúmin á 30° viðkvæmu prógrammi. Hengirúmin mega alls ekki fara í þurrkara. Gæta skal að hengirúmið sé ekki að nuddast utan í neitt við notkun.

Lýsing

La Siesta

La Siesta var stofnað árið 1991, þegar þýsk hjón hófu innflutning á hengirúmum frá Suður-Ameríku til Þýskalands. Hugsjón þeirra var að færa fólki þá hugarró og afslöppun sem fylgir hengirúmmum, en nú hafa synir þeirra tekið við keflinu. Stefna þessa fjölskyldufyrirtækis einkennist af samfélagslegri ábyrgð og virðingu gagnvart móður jörð.

Sem dæmi má nefna að allur viður sem notaður er í La Siesta vörunum er FSC® vottaður. Enn fremur ýtti annar stofnandi La Siesta eftir því að bómull yrði ræktuð lífrænt í Kólumbíu, en meirihluti hengirúma og -stóla La Siesta eru framleidd þar. Í kjölfar þess stofnaði hann SOCiLA, sem styður við lífræna bómullarrækt í Suður Ameríku.

Viðbótarupplýsingar

Þyngd Á ekki við
Ummál Á ekki við
Efni

Lífræn bómull

Gerð

Moki, Moki Max

Litur

Dolphy, Froggy, Lilly

vörumerki

La Siesta