Lýsing
Svampkubbasettið samanstendur af 14 svampkubbum mismunandi að stærð og lögun. Svampkubbarnir eru hvati fyrir börnin til að þjálfa hreyfigetuna og setja kubbana saman á mismunandi hátt þar sem ímyndunaraflið fær að njóta sín. Kubbasettið býður upp á opinn og skapandi leik sem styður við grófhreyfingar, samhæfingu, jafnvægi, ímyndunarafl og samvinnu barna. Áklæðið á kubbunum er með gott grip sem kemur í veg fyrir að kubbarnir renni til í leik.
Hentar fyrir 2 til 4 ára.
Fyrir hverja henta svampkubbar?
- Leikskólar
- Dagforeldrar og ungbarnaleikskólar
- Grunnskólar og frístundaheimili
- Sjúkraþjálfunarstofur
- Þroska- og iðjuþjálfun og fyrir börn með sérúrræði
- Íþróttamiðstöðvar og hreyfisalir fyrir börn
- Leiksvæði, barnahorn, biðstofur og fjölskyldumiðstöðvar
- Heimili
Innihald:
4 þríhyrningar, appelsínugulir: 240 x 240 x 240 mm
2 hálfir sívalningar, bláir: 240 x Ø 240 mm
2 sívalningar, bláir: 480 x Ø 120 mm
2 öldur, gular: 480 x 240 x 180 mm
1 kubbur/rétthyrningur, grænn: 480 x 240 x 120 mm
1 kubbur/rétthyrningur, appelsínugulur: 480 x 240 x 240 mm
2 brýr, grænar: 480 x 240 x 240 mm
Sendu tölvupóst á [email protected] til að panta.





Vörueiningar og -sett eru þróuð í þremur stærðum: MINI, MEDI og MAXI. Við mælum með MINI fyrir börn á aldrinum 0 til 2 ára, MEDI fyrir börn á aldrinum 2 til 4 ára og MAXI fyrir börn 4 ára og eldri.
Svampkubbasett frá Bänfer bjóða upp á skemmtilegan og skapandi leik í barnaherbergi, skóla, leikskóla, frístundaheimili, sjúkraþjálfun og íþróttaskóla.
Pólýúretansvampurinn í Bänfer-vörunum er vottaður samkvæmt stöðlunum OEKO-TEX®. OEKO-TEX® Standard 100 er eitt þekktasta merki heims fyrir vefnaðarvörur sem prófuð eru fyrir skaðlegum efnum.
Segldúkarnir (eða ytra lagið) innihalda ekki þalöt, þola svita, munnvatn og þvag auk þess að þola UV viðnám.
Bänfer vörurnar eru sérstaklega traustar og endingargóðar. Gott er að hafa í huga að hægt er að vera umhverfisvænn og endurnýja slitið hlífðarefni (ytra lagið) þannig að ekki þarf að henda heilum vörunum.
Við sýnum aðeins brotabrot af vöruúrvalinu sem hægt er að panta, en þú getur séð vörulistann í heild sinni 


