LA SIESTA Standar fyrir hengistóla

kr. 44.000kr. 74.000

Standarnir frá La Siesta eru ýmist úr timbri eða stáli. Auðvelt er að stilla hæðina á festingunum í tréstöndunum, en burðarþol þeirra er 160 kg. Þeir henta því bæði hæginda og fjölskyldu hengistólum. Stálstandurinn hefur hinsvegar minna burðarþol, eða 130 kg og hentar því eingöngu hæginda hengistólum.

Viðarstandarnir eru til í tveim gerðum, Calma og Vela. Calma er úr FSC™ vottuðu síberíulerki sem er sérstaklega veðurþolin viðartegund. Auk þess er búið meðhöndla viðinn með sérstakri háþrýsti lamineringu og aðferð til að gera hann vatnsþolnari. Calma er framleiddur í Kína. Vela er úr FSC™ vottuðu skandinavísku greni sem er einkar harðgert og hefur hlotið sömu meðhöndlun og Calma standurinn til að verja viðinn. Vela er framleiddur í Póllandi.

Stálstandurinn er dufthúðaður sem gerir hann endingargóðan og auðveldan að hreinsa. Hann er mjög einfaldur og fljótlegur í samsetningu sem gerir hann einkar meðfærilegan. Stálstandarnir eru framleiddir á Ítalíu.

Vörunúmer: LASSTANDSTOLA Flokkur: Merkimiðar: , , , , , ,

Lýsing

La Siesta

La Siesta var stofnað árið 1991, þegar þýsk hjón hófu innflutning á hengirúmum frá Suður-Ameríku til Þýskalands. Hugsjón þeirra var að færa fólki þá hugarró og afslöppun sem fylgir hengirúmmum, en nú hafa synir þeirra tekið við keflinu. Stefna þessa fjölskyldufyrirtækis einkennist af samfélagslegri ábyrgð og virðingu gagnvart móður jörð.

Sem dæmi má nefna að allur viður sem notaður er í La Siesta vörunum er FSC® vottaður. Enn fremur ýtti annar stofnandi La Siesta eftir því að bómull yrði ræktuð lífrænt í Kólumbíu, en meirihluti hengirúma og -stóla La Siesta eru framleidd þar. Í kjölfar þess stofnaði hann SOCiLA, sem styður við lífræna bómullarrækt í Suður Ameríku.

Viðbótarupplýsingar

Þyngd Á ekki við
Ummál Á ekki við
Efni

Viður, Stál

Gerð

Calma, Vela, Mediterráneo

Stærð

Hæginda, Fjölskyldu

vörumerki

La Siesta