Leikbakkar – Tuff Trays – 95 cm – Grænn

kr. 7.200

Á lager

 

Leikbakki grænn 95 cm 1 stk

Leikbakkar, (tuff trays og tuff spots) eru nauðsynleg  viðbót fyrir yngstu börnin í leikskólastarfinu. Þeir eru ómissandi fyrir hvers kyns listsköpun jafnt innan- sem utandyra.
Leikbakkarnir eru sterkir og endingargóðir úr höggþolnu plasti. Leikbakkinn er átthyrndur með upphækkuðum hliðum og halda því vel utan um vatn, sand, leir og lausan efnivið. Þeir afmarka leiksvæðið og draga úr sóðaskap.
Vegna stærðar sinnar og áttahyrndrar lögunar geta mörg börn leikið sér saman í einu. Þetta hvetur til samskipta, samvinnu og félagslegrar færni þar sem börnin skoða viðfangsefnið frá mismunandi sjónarhornum.
Leikbakkana má nota á fjölbreytilegan hátt, t.d. fyrir flokkunarverkefni, STEM-tilraunir, eða við listsköpun. Bakkarnir styðja við fínhreyfingar, vitsmunaþroska og skynjun og eru hannaðir til að kveikja ímyndunarafl barna og bjóða upp á endalausa möguleika til könnunar og náms, hvort sem er inni eða úti.

Bakkarnir eru léttir og meðfærilegir og auðvelt að flytja þá. Hægt er að leggja leikbakka á gólfið sem hentar vel fyrir yngstu börnin, en einnig er hægt að fá hæðarstillanlega fætur undir bakkann. Leikborðið er þannig hægt að stilla eftir aldurshópi.
Bakkana er auðvelt að þrýfa og stafla saman eftir notkun.

Hægt er að kaupa staka leikbakka.
Hægt er að kaupa stakar fætur undir bakkana.
Hægt er að fá alls konar aukahluti til á setja á leikbakkana eins og gras og spegla og fleira.

Stærð: Þvermál 95 cm x hæð 6 cm

Aldur: 3 ára+

Viðbótarupplýsingar

Þyngd 2000 g
Ummál 95 × 6 cm

vörumerki

Cozy Direct