Lýsing
Skólastóll – stærð 5 Colores
Skólastólarnir eru úr vistvænu plasti og einkennast af nútímalegri hönnun. Sætisbakið er örlítið sveigt og fjaðrandi og styður við náttúrulega líkamsstöðu sem gerir stólinn mjög þægilegan til setu. Áferð setunnar gerir það að verkum að notendur renna lítið til. Silfurlitaður rammi stólsins er gerður úr rúnnuðum breiðum stálfótum (18 mm í þvermál) sem tryggja mikinn stöðugleika. Stólfæturnir eru með plasttappa sem draga úr skraphljóðum og vernda gólf gegn skemmdum og rispum.
Stóllinn þolir vel óhreinindi og raka þar sem sætisskelin er úr harðgerðu slitsterku efni sem er auðvelt að halda hreinu. Forðast ber hreinsiefni sem innihalda alkóhól.
Stólarnir eru léttir og meðfæranlegir og auðvelt er að grípa þá og færa til þökk sé opinu á bakinu. Skólastólarnir eru staflanlegir sem spara páss við geymslu og auðveldar hreingerningar.
Stólinn er fjölnota og praktískur í grunnskóla- eða framhaldsskólaumhverfi. Stóllinn er tilvalinn fyrir svæði þar sem umgangur er mikill, eins og kennslustofum, biðstofum, í opnum rýmum og mötuneytum.
Þessi stóll er fáanlegur í stærðum fyrir yngsta stig, mið stig og efstastig skóla, eða grunn- og framhaldsskóla stig.
Stólarnir uppfylla staðal EN-1729 fyrir skólahúsgögn.
Stærð 4: Sætishæð: 38cm, breidd sætis 35x35cm. Æskileg hæð 133 – 159 cm
Stærð 5: Sætishæð: 43cm, breidd sætis 43x43cm. Æskileg hæð 146 – 176,5 cm
Stærð 6: Sætishæð: 46 cm, breidd sætis 43x43cm. Æskileg hæð 159 – 188 cm
Sendu tölvupóst á [email protected] til að fá frekari upplýsingar um vöruna.








