Vatnsleikjabraut 16 stk – AquaPlay Mudway Run

kr. 15.100

Á lager

 

AquaPlay Mudway RUN – 16 hlutir

AquaPlay Mudway býður börnum frá þriggja ára aldri að upplifa fjölbreytileika náttúrunnar á nýstárlegan hátt og opnar ótal möguleika á skapandi leik.

Börnin geta látið lítinn læk renna niður rennibrautina og stjórnað hraða og flæði vatnsins með ýmsum tækjum og tólum. Börnin geta bætt við sandi, mold, blómum og laufblöðum og stjórnað flæðinu með nokkrum gerðum af færanlegum stíflum og rennum. Í enda brautarinnar safnast vatnið saman í bakka. Hringrás sem hvetur til virks leiks sem börnin læra mikið af.

Vatnsleikjabrautin býður upp á ótal skapandi möguleika og nota má alls konar efni úr náttúrunni eins og sand, mold, steina eða plöntur. Hvort sem það eru sandkökur eða kastalar á brautinni, stíflur úr steinum, skurðir með laufum eða blómum. Brautin breytist í ævintýraheim sem hvetur stöðugt til könnunar og uppgötvunar.

Vatnsbrautin er létt og úr hágæða plasti sem er veðurþolið, sérstaklega auðvelt í umhirðu og auðvelt að þrífa. Sniðug hönnun sem auðvelt er að brjóta saman, ganga frá og geyma.

Fáanlegt í þremur mismunandi settum: Run, Flow og Stream.

Aldur: 3 ára+

Lýsing

Aquaplay Mudway

Þetta náttúrulega hringrásakerfi býður upp á óteljandi möguleika til skapandi leiks þar sem börn blanda saman vatni, sandi, mold, laufum og blómum. Brautin breytist í ævintýraheim sem hvetur stöðugt til könnunar og uppgötvunar.

Viðbótarupplýsingar

Þyngd 4660 g
Ummál 21.5 × 79 × 39.5 cm

vörumerki

Aquaplay

BIG

Simba Dickie Group, er þýskt fyrirtæki, sem er með nokkur vörumerki undir sínum hatti. Fyrirtækið hefur í fjölda ár framleitt vönduð og góð leikföng fyrir börn.