Um okkur
KRUMMA var stofnað árið 1986 undir nafninu Barnasmiðjan ehf af hjónunum Elínu Ágústsdóttur, leikskólakennara / tækniteiknara og Hrafni Ingimundarsyni, vélfræðingi. Hjónin vildu sjá breytingu í vöruúrvali á leiktækjum og leikföngum á íslenskum markaði og hófu framleiðslu á leiktækjum undir vörumerkinu KRUMMA-GULL.
Árið 1993 hlaut Barnasmiðjan, fyrst íslenskra fyrirtækja, viðurkenninguna „Öryggi barna á okkar ábyrgð“ fyrir markvissa stefnu í framleiðslu á leiktækjum. Meðal þeirra sem stóðu að viðurkenningunni eru Foreldrasamtökin, Landlæknisembættið, Slysavarnarfélag Íslands og Umferðarráð. Árið 2001 varð KRUMMA fyrst íslenskra fyrirtækja til að fá vottun samkvæmt evrópska staðlinum EN 1176 fyrir framleiðslu á leikvallatækjum.
KRUMMA hefur verið í fararbroddi að bjóða hágæða tæki og búnað fyrir leik- og grunnskóla bæði innan- sem og utandyra. Af framleiðslunni má nefna hjólagrindur, hjólagrindarskýli, mörk, körfuboltakörfur, bekki og borð ásamt ýmsum gerðum af leiktækjum. Auk eigin framleiðslu eru í boði hágæða leiktæki, útihúsgögn og öryggisundirlög sem framleitt eru í Evrópu. KRUMMA er í samstarfi við leiðandi framleiðendur á leiktækjum sem öll eru vottuð samkvæmt EN1176 staðlinum og bera Svansvottun. Nánari upplýsingar um birgjana má finna hér
KRUMMA setur börnin alltaf í fyrsta sæti og býður þeim ávallt gæðavörur. Mikil áhersla er lögð á opinn leik barna og margar kynslóðir leikskólakennara hafa notað einingakubbana (Unit Blocks) og holukubbana (Hollow Blocks) frá Community Playthings með góðum árangri. Plus-Plus kubbar, Kapla kubbar, CollectA dýrin, Rubens Barn dúkkur og Brio lestir eru frábær dæmi um leikföng sem eru í boði. Allt leikföng og kennsluefni sem hvetja börnin til að læra og skapa.
KRUMMA er að færa út kvíarnar og stækka á lykilsviðum sem skipta sköpum fyrir nám, framtíð og líðan barna. KRUMMA aðstoðar kennara og arkitekta við að hanna námsrými innan- og utandyra með húsgögnum frá Community Playthings, Moje Bambino, Dusyma og Cosy Direct, til að tryggja að börnin hafi sem besta umhverfi til að þroskast og læra í. Krumma starfrækir einnig leikfangaverslun þar sem í boði eru gæðavörur, leikföng og námsgögn fyrir börn sem einnig eru notuð í leik- og grunnskólum. Lögð er mikil áhersla á að leikföngin hjálpi börnum að læra samskipti og rökhugsun, örva ímyndunarafl og sköpunarkraft þeirra. Sífellt er verið að bæta við vöruúrvalið og fyrir valinu eru vörur sem efla þroska og hvetja fjölskyldur til að verja meiri tíma saman. KRUMMA leggur áherslu á sjálfbærar og endingargóðar vörur til að lágmarka sóun.