Öryggisvarnir & Klemmuvarnir

Öryggis-, klemmu- og kantvarnir

Úrval af öryggis- og klemmuvörnum fyrir leik- og grunnskóla og heimili og stofnanir. Einnig fjölmargar kantvarnir fyrir öryggi barna.
Klemmuvarnir og hurðastopparar fyrir inni- og útihurðir og hurðalistar úr barnvænu efni sem passa við ýmsar breiddir hurða.
Hornvarnir eins og hornhlífar og kanthlífar vernda börn gegn skörpum brúnum eða köntum á veggjum eða húsgögnum. Hornhlífar fyrir borð og skrifborð og skarpar brúnir innan leikskóla og heimilis. Gluggalæsingin sem kemur í veg fyrir að gluggi opnist alveg út. Öryggisspeglar sem brotna ekki.