Lýsing
Þessir mjúku kanínu baunapúðar gera lestrarhornið notalegra. Grjónapúði fer vel í hvaða leikhorni eða barnaherbergi sem er.
Stærðin á kanínu grjónapúðanum er sérsniðin fyrir unga lesendur frá 3 ára aldri. Hönnunin styður vel við líkamann og hvetur til góðrar líkamsstöðu á meðan barnið les eða dundar sér í rólegum leik. Það er einstaklega þægilegt að sitja eða liggja á baunapúðanum.
Áklæðið er úr endingargóðu næloni sem hrindir bæði frá sér vatni og óhreinindum. Auðvelt er að strjúka af áklæðinu með votum klút.
Áklæðið er hægt að þvo við 40 gráður Celsíus
Breidd: 40cm
Hæð: 60cm
Dýpt:; 60 cm
Aldur: 3 ára+




