Lasertæki

Sýnir allar 5 niðurstöður

Fyrir hverja er Flux lasertækin?

Kennara, skapandi einstaklinga, handverksfólk, hönnuði, frumkvöðla og lítil fyrirtæki.
Hvernig er hægt að nota Flex lasertækin?
– Kennarar og skólar: Verkefni í hönnun, tækni, listum og nýsköpun þar sem nemendur hanna og búa til eigin hluti. Búa til kennslugögn, þrívíddarlíkön úr samsettum hlutum, skilti, form og skapandi verkefni. Innbyggða myndavélin og öryggisvarnirnar gera þær mjög öruggar í skólastofunni.
– Heimili og áhugafólk: Hanna persónulegar gjafir, skrautmuni, skartgripi og merkingar.
– Hönnuðir, handverksfólk og frumkvöðlar: Sérsniðnar gjafir, merkingar á vörur, framleiða sýnishorn, skartgripagerð, módel og vörulíkön, vinna á textíl og leðurvörur.
– Lítil og stærri fyrirtæki: Framleiða sérmerktar vörur, gjafavöru, umbúðaskreytingar og persónulegar vörur fyrir viðskiptavini.