Hólfaskipting fyrir leikbakka – 95 cm
kr. 5.580
Á lager
Hólfaskipting úr viði fyrir 95 cm leikbakka
Það er hægt að breyta leikbakkanum í spennandi leiksvæði með hólfaskiptingunni sem passar fullkomlega í alla leikbakkana.
Þrjá viðarspítur sem skipta leikbakkanum í sex jafnstór, þríhyrningslaga hólf. Hólfaskiptingin hvetur til flokkunar, talningar og samvinnu. Fullkomin fyrir stærðfræðileik eða til að flokka náttúrulegan efnivið og lausa hluti. Tilvalin fyrir stóra og litla lausa hluti: laufblöð, steina, prik og annað til flokkunar og rannsókna.
Vönduð viðaráferð sem tryggir endingu og þolir hvers kyns spennandi leikuppsetningar. Viðarbitarnir eru hannaðir með öryggi barna í huga og eru þeir með slétta áferð og ávöl horn til að koma í veg fyrir flísar eða skarpar brúnir.
Létt og auðvelt að færa og stilla og einfaldara að endurskipuleggja hólfin eftir þörfum fyrir mismunandi verkefni. Þegar leiknum er lokið eru viðarskilrúmin einfaldlega tekin í sundur og pakkað niður.
Styður við stærðfræðinám: Hólfaskiptingin hjálpar til við að kynna hugtök eins og almenn brot með því að skipta bakkanum í hluta, sem styður við sjónrænan og verklegan skilning á heild og hlutum.
Flokkunarfærni: Börn geta flokkað mismunandi efni sem eflir færni í flokkun og skipulagningu í leik.
Bætt einbeiting: Með því að hólfa niður mismunandi svæði hjálpar skiptingin börnum að einbeita sér að einu verkefni í einu, sem eykur athygli og þátttöku.
Leikbakka má nota á fjölbreytilegan hátt, t.d. fyrir flokkunarverkefni, STEM-tilraunir, eða við listsköpun. Bakkarnir styðja við fínhreyfingar, vitsmunaþroska og skynjun og eru hannaðir til að kveikja ímyndunarafl barna og bjóða upp á endalausa möguleika til könnunar og náms, hvort sem er inni eða úti.
Hægt er að kaupa staka leikbakka.
Hægt er að kaupa stakar fætur undir bakkana.
Hægt er að fá alls konar aukahluti til á setja á leikbakkana eins og gras og spegla og fleira.
Innihald: 3 jafnstórir viðarbútar
Stærð: Lengd 88 cm x hæð 6 cm
Aldur: 3 ára+





