Lýsing
Fellanlegur mjúkur barnasófi úr svampefni. Fjölnota svampsófi sem hægt er að nota bæði í leik og einnig í hvíldarstund. Sófinn er með hárri bakstoð sem börnin geta hvílt upp að.
Auðveldlega er hægt er að breyta sófanum yfir í stóran flöt á gólfinu með einföldu handtaki. Þegar sófinn er opnaður myndast stór og mjúkur flötur þar sem börn geta hvort sem er leikið sér eða lesið, slakað á og hvílt sig. Þannig nýtist húsgagnið á margvíslegan hátt og auðvelt er að breyta eftir þörfum, hvort sem er í lestrar- og hvíldarkróka eða í leiksvæði.
Auðvelt að halda sófanum hreinum.
Hentar fyrir börn frá 0-2 ára.
Litir fyrir sófann:

Stærð sófi: Lengd 80 cm x breidd 60 cm. Sætishæð 22 cm
Útfelldur sófi: Lengd 80 cm x breidd 120 cm. Sætishæð 11 cm
Sendu tölvupóst á [email protected] til að panta.



Vörueiningar og -sett eru þróuð í þremur stærðum: MINI, MEDI og MAXI. Við mælum með MINI fyrir börn á aldrinum 0 til 2 ára, MEDI fyrir börn á aldrinum 2 til 4 ára og MAXI fyrir börn 4 ára og eldri.
Svampkubbasett frá Bänfer bjóða upp á skemmtilegan og skapandi leik í barnaherbergi, skóla, leikskóla, frístundaheimili, sjúkraþjálfun og íþróttaskóla.
Pólýúretansvampurinn í Bänfer-vörunum er vottaður samkvæmt stöðlunum OEKO-TEX®. OEKO-TEX® Standard 100 er eitt þekktasta merki heims fyrir vefnaðarvörur sem prófuð eru fyrir skaðlegum efnum.
Segldúkarnir (eða ytra lagið) innihalda ekki þalöt, þola svita, munnvatn og þvag auk þess að þola UV viðnám.
Bänfer vörurnar eru sérstaklega traustar og endingargóðar. Gott er að hafa í huga að hægt er að vera umhverfisvænn og endurnýja slitið hlífðarefni (ytra lagið) þannig að ekki þarf að henda heilum vörunum.
Við sýnum aðeins brotabrot af vöruúrvalinu sem hægt er að panta, en þú getur séð vörulistann í heild sinni 


