Lýsing
Leikföng sem efla nám og þroska
Fræðandi leikföng frá Guidecraft eru hönnuð til að styðja við þroska barna á fyrstu árum ævinnar, vekja forvitni og hvetja til virks náms í gegnum leik og eigin reynslu.
Byggt á þekkingu og reynslu
Leikfangasettin eru þróuð í samstarfi við sérfræðinga, kennara og foreldra. Hönnunin tekur mið af eðlislægri leikhegðun barna og því hvernig þau læra og uppgötva heiminn í gegnum leik.
Gæði sem endast
Guidecraft leggur áherslu á vandaða hönnun og leikföng sem endast árum saman. Auðvelt er að þrífa vörurnar og þær henta því vel bæði á heimilum og í leik- og grunnskólum. Með áherslu á endingu og gæði er jafnframt dregið úr óþarfa sóun.








