Einingakubbar – Sett A 68 stk

kr. 33.000

Einingakubbar frá Guidecraft er þroskandi kubbasett fyrir börn frá 2ja ára aldri.

Einingakubbar – A-sett frá Guidecraft er vandað byggingarkubbasett úr viði sem styður við skapandi leik og nám í gegnum leik (STEM). Kubbar í stöðluðum stærðum og formum hvetja börn til að byggja samhverfar byggingar og uppgötva á eigin spýtur hugtök eins og jafnvægi, mynstur, stærðfræði og undirstöðuatriði verkfræði.

Staðlaðar stærðir kubbanna auðvelda börnum að raða þeim saman, stafla og byggja fjölbreytt mannvirki. Settið inniheldur grunn af hefðbundnum einingakubbum og hentar sérstaklega vel fyrir eitt börn til að kynna fyrir þeim leik með kkubbum.

Eiginleikar:

  • 68 vandaðir byggingarkubbar úr viði.
  • Staðlaðar stærðir og form samkvæmt hefðbundnu einingakubbakerfi.
  •  Styðja við stærðfræðilega hugsun, rýmisgreind og skilning á jafnvægi og mynstrum.
  •  Efla sköpunargáfu, lausnaleit og STEM-nám í gegnum leik.
  • Henta fyrir eitt barn.

Aldur: Frá 2 ára.

Settið inniheldur 68 viðarkubba

Á lager

Vörunúmer: GUIG6811 Flokkar: , Merkimiðar: , , ,

Lýsing

Leikföng sem efla nám og þroska
Fræðandi leikföng frá Guidecraft eru hönnuð til að styðja við þroska barna á fyrstu árum ævinnar, vekja forvitni og hvetja til virks náms í gegnum leik og eigin reynslu.

Byggt á þekkingu og reynslu
Leikfangasettin eru þróuð í samstarfi við sérfræðinga, kennara og foreldra. Hönnunin tekur mið af eðlislægri leikhegðun barna og því hvernig þau læra og uppgötva heiminn í gegnum leik.

Gæði sem endast
Guidecraft leggur áherslu á vandaða hönnun og leikföng sem endast árum saman. Auðvelt er að þrífa vörurnar og þær henta því vel bæði á heimilum og í leik- og grunnskólum. Með áherslu á endingu og gæði er jafnframt dregið úr óþarfa sóun.

Viðbótarupplýsingar

Þyngd 1360 g
Ummál 18 × 18 × 18 cm

vörumerki

Guidecraft