Gegnsæjar byggingaplötur – 4 stk

kr. 12.500

Viðarkubbar frá Guidecraft er þroskandi kubbasett fyrir börn frá 2ja ára aldri.

Glærar byggingaplötur frá Guidecraft eru gegnsæjar plötur úr sterku akrýli sem opna nýja möguleika í kubbaleik. Plöturnar gera börnum kleift að byggja háar byggingar á mörgum hæðum og skapa spennandi mannvirki þar sem ljós skín í gegnum byggingarplöturnar.

Plöturnar má nota sem þök, lok, palla eða gólf á milli hæða. Þær henta sérstaklega vel með hefðbundnum viðarkubbum og litríkum kubbum frá Guidecraft og gefa börnum tækifæri til að kanna samspil ljóss, forms og byggingar.

Eiginleikar:

  • 4 gegnsæjar byggingarplötur úr sterku og endingargóðu akrýli.
  • 2 stórar og 2 litlar plötur.
  • Stærðir samræmast hefðbundnu einingakubbakerfi.
  • Hægt að nota sem þök, lok, palla og gólf á milli hæða.
  • Henta með hefðbundnum viðarkubbum og litríkum akrýlkubbum.

Stærð: Stærri plöturnar eru 14 × 28 × 1,9 cm og þær minni 7 × 28 × 1,9 cm.

Aldur: Frá 2 ára.

Á lager

Vörunúmer: GUIG6831 Flokkar: , Merkimiðar: , , , ,

Lýsing

Leikföng sem efla nám og þroska
Fræðandi leikföng frá Guidecraft eru hönnuð til að styðja við þroska barna á fyrstu árum ævinnar, vekja forvitni og hvetja til virks náms í gegnum leik og eigin reynslu.

Byggt á þekkingu og reynslu
Leikfangasettin eru þróuð í samstarfi við sérfræðinga, kennara og foreldra. Hönnunin tekur mið af eðlislægri leikhegðun barna og því hvernig þau læra og uppgötva heiminn í gegnum leik.

Gæði sem endast
Guidecraft leggur áherslu á vandaða hönnun og leikföng sem endast árum saman. Auðvelt er að þrífa vörurnar og þær henta því vel bæði á heimilum og í leik- og grunnskólum. Með áherslu á endingu og gæði er jafnframt dregið úr óþarfa sóun.

Viðbótarupplýsingar

Þyngd 1360 g
Ummál 18 × 18 × 18 cm

vörumerki

Guidecraft