Gluggakubbar og akrýl kubbar – 24 stk

kr. 33.000

Kubbar frá Guidecraft er þroskandi kubbasett fyrir börn frá 2ja ára aldri.

Kubbasettið sameinar hefðbundna viðarkubba og litríka gimsteina kubba og færa kubbaleikinn á nýtt stig með ljósi, litum og skapandi hönnun. Viðarkubbarnir eru með opum sem hægt er að fylla með lituðu akrýlkubbunum á mismunandi vegu. Þannig geta börnin skapað fjölbreytt mynstur, byggingar og litrík mannvirki um leið og þau kanna samspil ljóss og lita.

Settið inniheldur 24 kubba: 12 viðarkubba í þremur mismunandi formum og 12 gegnsæja akrýlkubba í þremur formum og tíu litum. Kubbarnir fylgja sömu stærðarhlutföllum og hefðbundnir einingakubbar og passa því vel saman við önnur kubbasett frá Guidecraft.

Eiginleikar:

  • 24 kubbar: 12 viðarkubbar og 12 litríki akrýlkubbar.
  • Viðarkubbar í þremur mismunandi formum.
  • Gegnsæir akrýlkubbar í þremur formum og tíu litum.
  • Úr endingargóðum gúmmíviði (Rubberwood) og akrýli.
  • Samræmast stærðarhlutföllum hefðbundinna einingakubba.
  • Hvetja til sköpunar, litaskoðunar og könnunar á ljósi.

Stærð: Stærsti kubburinn er 14 × 7 × 3,6 cm og sá minnsti 3,6 × 3,6 × 3,6 cm.

Aldur: Frá 2 ára.

Á lager

Vörunúmer: GUIG6832 Flokkar: , Merkimiðar: , , , ,

Lýsing

Leikföng sem efla nám og þroska
Fræðandi leikföng frá Guidecraft eru hönnuð til að styðja við þroska barna á fyrstu árum ævinnar, vekja forvitni og hvetja til virks náms í gegnum leik og eigin reynslu.

Byggt á þekkingu og reynslu
Leikfangasettin eru þróuð í samstarfi við sérfræðinga, kennara og foreldra. Hönnunin tekur mið af eðlislægri leikhegðun barna og því hvernig þau læra og uppgötva heiminn í gegnum leik.

Gæði sem endast
Guidecraft leggur áherslu á vandaða hönnun og leikföng sem endast árum saman. Auðvelt er að þrífa vörurnar og þær henta því vel bæði á heimilum og í leik- og grunnskólum. Með áherslu á endingu og gæði er jafnframt dregið úr óþarfa sóun.

Viðbótarupplýsingar

Þyngd 1360 g
Ummál 18 × 18 × 18 cm

vörumerki

Guidecraft