LA SIESTA Fjölskyldu hengirúm
Price range: kr. 27.840 through kr. 49.480
Fjölskylduhengirúm frá La Siesta. Þolir allt að 200 kg en lágmarksfjarlægð milli festinga eru 360 cm og í 180 cm hæð. Í heild er hengirúmið 400 cm á lengd, en dúkurinn sjálfur er 260 x 180 cm.
Hengirúmin eru annars vegar úr GOTS vottaðri lífrænni bómull og hins vegar úr HamacTex veðurþolnu efni, en öll eru þau handgerð í Kólumbíu. Bómullin er mýkri, en veðurþolna efnið er myglu og UV þolið. Veðurþolna efnið er einnig fljótara að þorna og upplitast síður. Ef ætlunin er að skilja hengirúmið eftir úti í engu skjóli, er öruggara að velja veðurþolna efnið.
Þvo má hengirúmin á 30° viðkvæmu prógrammi. Þau mega alls ekki fara í þurrkara og gæta þarf sérstaklega að greiða vel úr strengjunum við uppsetningu.
Viðbótarupplýsingar
| Þyngd | Á ekki við |
|---|---|
| Ummál | Á ekki við |
| Efni | Lífræn bómull, Veðurþolið |
| Gerð | Brisa, Flora, Modesta |
| Litur | Vanilla, Sea Salt, Cedar, Toucan, Wave, Lime, Marine, Almond, Chilli, Curaçao, Blossom, Zebra, Blue zebra, Flowers, Azure, Flamingo |
vörumerki
La Siesta
La Siesta hengirúm og hengistólar
La Siesta vörulínan inniheldur hágæða hengirúm, hengistólar sem eru einstaklega þægilegir og endingargóðir. Hengirúmin og stólarnir henta fjölskyldum, börnum og fullorðnum sem vilja skapa notalegt rými til slökunar innandyra eða utandyra.
Í boði eru einföld og tvöföld hengirúm, fjölskylduhengirúm, barnahengirúm, ferðahengirúm, hengistólar með og án stands ásamt festingum og öðrum fylgihlutum. Vörurnar eru framleiddar úr slitsterkum efnum með góðu burðarþoli og henta vel í garðinn, á svalirnar, í sumarbústaðinn eða inn á heimilið eða á skrifstofuna.

































