LA SIESTA Tvöfalt hengirúm

kr. 18.000kr. 26.000

Tvöfalt hengirúm frá La Siesta. Þolir allt að 160 kg en lágmarksfjarlægð milli festinga eru 310 cm og í 155 cm hæð. Í heild er hengirúmið 350 cm á lengd, en dúkurinn sjálfur er 230 x 160 cm.

Verð á tvöföldum hengirúmum ræðst af gerð:

Brisa – 18.000,-

Paloma – 18.400,-

Currambera – 19.990,-

Carolina – 26.000,-

Hengirúmin eru annars vegar úr bómull og hins vegar úr HamacTex veðurþolnu efni, en öll eru þau handgerð í Kólumbíu. Bómullin er mýkri, en veðurþolna efnið er myglu og UV þolið. Veðurþolna efnið er einnig fljótara að þorna og upplitast síður. Ef ætlunin er að skilja hengirúmið eftir úti í engu skjóli, er öruggara að velja veðurþolna efnið.

Þvo má hengirúmin á 30° viðkvæmu prógrammi. Þau mega alls ekki fara í þurrkara og gæta þarf sérstaklega að greiða vel úr strengjunum við uppsetningu.

Vörunúmer: LASTVO Flokkur: Merkimiðar: , , , ,

Lýsing

La Siesta

La Siesta var stofnað árið 1991, þegar þýsk hjón hófu innflutning á hengirúmum frá Suður-Ameríku til Þýskalands. Hugsjón þeirra var að færa fólki þá hugarró og afslöppun sem fylgir hengirúmmum, en nú hafa synir þeirra tekið við keflinu. Stefna þessa fjölskyldufyrirtækis einkennist af samfélagslegri ábyrgð og virðingu gagnvart móður jörð.

Sem dæmi má nefna að allur viður sem notaður er í La Siesta vörunum er FSC® vottaður. Enn fremur ýtti annar stofnandi La Siesta eftir því að bómull yrði ræktuð lífrænt í Kólumbíu, en meirihluti hengirúma og -stóla La Siesta eru framleidd þar. Í kjölfar þess stofnaði hann SOCiLA, sem styður við lífræna bómullarrækt í Suður Ameríku.

Viðbótarupplýsingar

Þyngd Á ekki við
Ummál Á ekki við
Efni

Bómull, Veðurþolið

Gerð

Brisa, Currambera, Paloma, Carolina

Litur

Sea Salt, Cedar, Vanilla, Toucan, Wave, Lime, Marine, Almond, Cherry, Blueberry, Kiwi, Apricot, Flowers, Spring, Citrus, Olive

vörumerki

La Siesta