Viðbótarupplýsingar
| Þyngd | 2000 g |
|---|
kr. 43.570
Það er hægt að breyta leikbakkanum í spennandi leiksvæði með grasmottunni, speglinum og hólfaskiptingunni.
Leikbakki
Leikbakkinn er sterkur og endingargóður úr höggþolnu plasti. Leikbakkinn er átthyrndur með upphækkuðum hliðum og halda því vel utan um vatn, sand, leir og lausan efnivið. Vegna stærðar sinnar og lögunar geta mörg börn leikið sér saman í einu. Þetta hvetur til samskipta, samvinnu og félagslegrar færni þar sem börnin skoða viðfangsefnið frá mismunandi sjónarhornum.
Hólfaskipting
Viðarspýtur sem skipta leikbakkanum í sex jafnstór, þríhyrningslaga hólf. Hólfaskiptingin hvetur til flokkunar, talningar og samvinnu. Fullkomin fyrir stærðfræðileik eða til að flokka náttúrulegan efnivið og lausa hluti. Tilvalin fyrir stóra og litla lausa hluti: laufblöð, steina, prik og annað til flokkunar og rannsókna.
Grasmotta
Grasmottan passar fullkomlega í alla mini leikbakkana. Tilvalið er að nota grasmottuna til að búa til græna haga fyrir sveitabæinn, fyrir smádýr eða sem bakgrunn fyrir aðrar uppsetningar í frjálsum leik. Grasmottan er létt og meðfærileg og auðvelt að flytja á milli staða. Auðvelt að rúlla mottunni upp og setja á geymslustað.
Spegill
Spegillinn gefur skýra endurspeglun, sem gerir börnum kleift að sjá sjálf sig og umhverfi sitt með ágætis skýrleika. Spegillinn hvetur til ímyndunarleiks, málþroska og fínhreyfinga.
Leikbakkana má nota á fjölbreytilegan hátt, t.d. fyrir flokkunarverkefni, STEM-tilraunir, eða við listsköpun. Bakkarnir styðja við fínhreyfingar, vitsmunaþroska og skynjun og eru hannaðir til að kveikja ímyndunarafl barna og bjóða upp á endalausa möguleika til könnunar og náms, hvort sem er inni eða úti.
Bakkarnir eru léttir og meðfærilegir og auðvelt að flytja þá. Hægt er að leggja leikbakka á gólfið sem hentar vel fyrir yngstu börnin.
Bakkana er auðvelt að þrífa og stafla saman eftir notkun.
Leikbakkasettið inniheldur:
1x leikbakki 70 cm
1x fætur undir leikbakka
1x hólfaskipting
1x grasmotta
1x spegill
Aldur: 3 ára+
Á lager
| Þyngd | 2000 g |
|---|