Lundby herbergi – 3 stærðir

Price range: kr. 3.200 through kr. 5.060

Lundby herbergin í dúkkuhúsið koma í þremur stærðum. Hver herbergja eining er 44cm, 33cm og 22cm.

  • Hægt er að nota herbergin ein og sér
  • Byggja úr þeim stærri einingar
  • Nota sem auka hæð í Lundby Life og Lundby Creative húsunum.
Skemmtileg viðbót við Lundby línuna sem gerir möguleikana enn fleiri þegar kemur að því að skapa sitt eigið dúkkuhús.
Það er sitthvort veggfóðrið á veggjunum eftir því hvor hliðin snýr inn og því hægt að ráða útliti herbergjanna.
Einnig er hægt er að taka veggina úr og hafa rýmið opið.
Herbergin koma án fylgihluta. Fylgihlutir keyptir sér.
Aldur: 3+ára
Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , , ,

Lýsing

Algengar spurningar um Lundby

Fyrir hvaða aldur henta Lundby dúkkuhús?
Skoðaðu ráðlagðan aldur á hverri vöru, þær geta verið mismunandi eftir dúkkuhúsum og fylgihlutum. Algengast er fyrir aldurinn 3+ og eldri.

Passa Lundby fylgihlutir í eldri dúkkuhús?
Lundby vörur eru hannaðar í 1:18 hlutfalli og margar viðbætur eru ætlaðar til að passa við mismunandi Lundby hús. Athugaðu upplýsingar um tiltekna vöru ef þú átt eldri gerð.

Þarf ég að kaupa allt dúkkuhúsið í einu?
Nei, þú getur byrjað á dúkkuhúsi eða minni vöru, eftir því hvað hentar. Hægt er að bæta við húsgögnum, dúkkum, gæludýrum og fylgihlutum síðar. Algengast er fyrir aldurinn 3+ og eldri.

Fylgja húsgögn og dúkkur með dúkkuhúsinu?
Það fer eftir vörunni. Skoðaðu vörulýsinguna til að sjá nákvæmlega hvað fylgir hverjum pakka.

Hvaða Lundby gjöf hentar þeim sem á þegar dúkkuhús?
Herbergissett, húsgögn, dúkkur, gæludýr og litlir fylgihlutir eru mögulegar viðbætur. Veldu út frá því sem viðkomandi á nú þegar.

Er hægt að breyta útliti Lundby dúkkuhúss?
Já, með því að bæta við húsgögnum og fylgihlutum eða endurraða innréttingunum geturðu skapað nýtt útlit og nýjar aðstæður í leiknum.

Hvar get ég keypt Lundby vörur á Íslandi?
Skoðaðu Lundby úrvalið í netverslun KRUMMA og kynntu þér vörur, verð og upplýsingar um afhendingu þar.

Viðbótarupplýsingar

Ummál Á ekki við
Lundby herbergi

22 cm, 33 cm, 44 cm

vörumerki

Lundby

Lundby vörur

Með Lundby dúkkuhúsum og fylgihlutum geta börnin skapað sinn eigin heim, innréttað herbergi og látið hugmyndaflugið ráða ferðinni. Lundby vörur eru í 1:18 stærðarhlutfalli.

Af hverju að velja Lundby?

  • Ímyndunaraflið fær að njóta sín og dúkkuhús eru vettvangur fyrir endalausar sögur þar sem börnin geta skapað persónur, í hversdagslegum aðstæðum og mótað heiminn alveg eftir eigin hugmyndum.
  • Börnin skapa og hanna alveg sjálf. Með húsgögnum og fylgihlutum geta börnin innréttað, ákveðið liti, endurraðað og breytt herbergjunum eftir eigin smekk og hugmyndum.
  • Það þarf ekki að kaupa allt í einu. Byrjaðu á dúkkuhúsi eða einu herbergi og bættu síðan við húsgögnum, dúkkum, gæludýrum og skemmtilegum smáatriðum. Þannig getur leikurinn þróast og safnið stækkað með tímanum.
  • Lundby hentar vel í afmælisgjafir, jólagjafir og önnur tilefni.

Micki