Lýsing
Flott kúlubraut úr viði, sem ýtir undir sköpun og ímyndun hjá börnunum. Hvetur þau til að prófa sig áfram með mismunandi byggingar á brautunum. Ung börn geta auðveldlega fylgt hreyfingu kúlunnar þegar hún ferðast niður brautina. Kúluspil hjálpa til við að þroska samhæfingu augna og handa.
Kúlubrautin inniheldur 4 mismunandi litaðar kúlur, 2 persónur og kúlubraut.
3+ ára






