#klemmuvarnir

Sýnir allar 6 niðurstöður

Klemmuvörn, puttavörn, skellivörn og gluggalæsing

Klemmuvarnir, eða puttavarnir, eru öryggislausnir fyrir hurðir og draga úr hættu á að fingur klemmist við hurðarlamir eða hurðarkant. Þær henta sérstaklega þar sem margir fara um og þar sem börn eru til staðar, til dæmis í leikskólum, skólum, heilbrigðisstofnunum og opinberu húsnæði.
Klemmuvarnir eiga að vera á öllum hurðum þannig að börn geti ekki óvart stungið fingri í fals á hurð og lokað henni þannig að slys hljótist af. Klemmuvarnir endast í takmarkaðan tíma og því mikilvægt að gert sé við þær reglulega. Endingartími klemmuvarna er oft skemmri á útidyrahurðum vegna veðurfarsáhrifa á efnið í þeim.
Skellivörn er búnaður sem kemur í veg fyrir að hurðir skellist
Öryggislæsing á glugga – til að hindra að börn geti dottið út.