LA SIESTA Hengirúm með stöngum
kr. 14.900 – kr. 42.000
Hengirúm með stöngum frá La Siesta. Helsti munur á þeim og án stanga er að gæta þarf að ekki sé slaki á hengirúmum með stöngum þegar þau eru fest, á meða þau sem eru án stanga hafa slaka. Hengirúmin með stöngum koma í þrem stærðum, einfalt, tvöfalt og fjölskyldu. Við mælum með að skoða stærðarmyndirnar vel við val á hengirúmunum.
Verð á hengirúmum með stöngum ræðst af gerð:
Fruta – 14.900,- einfalt; veðurþolið með stöng úr FSC™ vottuðum bambus
Virgina – 23.900,- fjölskyldu; neta bómull með stöng úr FSC™ vottaðri furu
Alisio – 26.000,- tvöfalt; veðurþolið með stöng úr FSC™ vottuðum bambus
Florencia – 29.900,- tvöfalt; GOTS vottuð lífræn bómull með stöng úr FSC™ vottuðum bambus
Alabama – 42.000,- fjölskyldu; veðurþolið og bólstrað með stöng úr FSC™ vottaðri furu og áföstum kodda
Hengirúmin eru annars vegar úr bómull og hins vegar úr HamacTex veðurþolnu efni. Bómullin er mýkri, en veðurþolna efnið er myglu og UV þolið. Veðurþolna efnið er einnig fljótara að þorna og upplitast síður. Ef ætlunin er að skilja hengirúmið eftir úti í engu skjóli, er öruggara að velja veðurþolna efnið. Fruta, Alisio og Florencia eru framleidd í Kólumbíu, en Alabama og Virgina á Indlandi.
Þvo má hengirúmin í höndum.
Viðbótarupplýsingar
Þyngd | Á ekki við |
---|---|
Ummál | Á ekki við |
Efni | Veðurþolið, Lífræn bómull, Bómull – neta |
Gerð | Fruta, Alisio, Alabama, Florencia, Virginia |
Litur | Curaçao, Kiwi, Mango, Sea Salt, Toucan, Almond, Vanilla, Red Pepper, Navy Blue, Avocado, Arabica, Latte, Écru |