Vatnsleikjabraut 16 stk – AquaPlay Mudway Run
kr. 15.100
Á lager
AquaPlay Mudway RUN – 16 hlutir
AquaPlay Mudway býður börnum frá þriggja ára aldri að upplifa fjölbreytileika náttúrunnar á nýstárlegan hátt og opnar ótal möguleika á skapandi leik.
Börnin geta látið lítinn læk renna niður rennibrautina og stjórnað hraða og flæði vatnsins með ýmsum tækjum og tólum. Börnin geta bætt við sandi, mold, blómum og laufblöðum og stjórnað flæðinu með nokkrum gerðum af færanlegum stíflum og rennum. Í enda brautarinnar safnast vatnið saman í bakka. Hringrás sem hvetur til virks leiks sem börnin læra mikið af.
Vatnsleikjabrautin býður upp á ótal skapandi möguleika og nota má alls konar efni úr náttúrunni eins og sand, mold, steina eða plöntur. Hvort sem það eru sandkökur eða kastalar á brautinni, stíflur úr steinum, skurðir með laufum eða blómum. Brautin breytist í ævintýraheim sem hvetur stöðugt til könnunar og uppgötvunar.
Vatnsbrautin er létt og úr hágæða plasti sem er veðurþolið, sérstaklega auðvelt í umhirðu og auðvelt að þrífa. Sniðug hönnun sem auðvelt er að brjóta saman, ganga frá og geyma.
Fáanlegt í þremur mismunandi settum: Run, Flow og Stream.
Aldur: 3 ára+
Viðbótarupplýsingar
| Þyngd | 4660 g |
|---|---|
| Ummál | 21.5 × 79 × 39.5 cm |










