FLUX laserskurðartæki
FLUX er leiðandi tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í öflugum, nákvæmum og notendavænum laserskurðartækjum og lofthreinsibúnað. Fyrirtækið hefur getið sér gott orð fyrir að brúa bilið á milli faglegra framleiðslutækja og auðveldrar notkunar, hvort sem er fyrir skóla, hönnunarstofur eða heima.
Með vélum frá FLUX er hægt að breyta hugmyndum í vörur með því að skera út form, grafa mynstur, sérmerkja hluti og prenta í lit. Vélarnar henta bæði fyrir skapandi verkefni og faglega framleiðslu.
Ador 3-in-1 lasertæki
Fjölnota tæki sem hægt er að nota á þrjá mismunandi vegur: Laserskurður (10W / 20W Diode Laser), leturgröftur (2W Infrared Laser) og litaprentun (CMYK Color Printing) í einni vél.
Vinnusvæði: 430 × 300 mm
Skoða
Beamo II lasertæki
Beamo Ⅱ er fyrirferðarlítil CO₂-laserskurðarvél,með 30W laser, þar sem hægt er að bæta við innrauðri lasereiningu fyrir merkingar á tilteknum málmyfirborðum.
Vinnusvæði: 360 × 240 mm
Skoða
Beambox II lasertæki
BeBeambox Ⅱ er öflug CO₂-laserskurðarvél, með 55W laser, þar sem hægt er að bæta við innrauðri lasereiningu fyrir merkingar á tilteknum málmyfirborðum.
Vinnusvæði: 600 × 375 mm
Skoða
HEXA lasertæki
HEXA er öflug CO₂-laserskurðarvél með 60W laser. Hannað fyrir samfellda vinnu og krefjandi verkefni þar sem skurðargeta, nákvæmni og afköst skipta máli.
Vinnusvæði: 700 × 410 mm.
Skoða
HEXA RF
HEXA RF er framleiðslumiðuð laserskurðarvél sem notar RF-lasertækni (Radio Frequency laser technology). Hún er fáanleg með mismunandi aflstyrk, 30W / 60W / 80W, eftir útfærslu og leggur áherslu á nákvæman leturgröft, mikinn vinnsluhraða og endingargóðan laserbúnað. Sérstaklega hraðvirk framleiðsluvél og er ætluð verkefnum þar sem mikil smáatriði, stöðug gæði og afköst skipta miklu máli. Þessi vél er sérstaklega áhugaverð fyrir þá sem vilja fjárfesta í vél fyrir reglulega og faglega framleiðslu.
Vinnusvæði: 700 × 410 mm
Skoða
Beam Air lofthreinsikerfi
Beam Air Series er lína af lofthreinsibúnaði sem er hannaður fyrir laserskurð og leturgröft. Búnaðurinn síar reyk, agnir og lykt sem getur myndast við vinnslu efna. Með fjölþrepa síun er hægt að bæta loftgæði í vinnurýminu og gera vinnuaðstöðuna þægilegri.

Fyrir hverja er Flux lasertækin?
Kennara, skapandi einstaklinga, handverksfólk, hönnuði, frumkvöðla og lítil fyrirtæki.
Hvernig er hægt að nota Flex lasertækin?
- Kennarar og skólar: Verkefni í hönnun, tækni, listum og nýsköpun þar sem nemendur hanna og búa til eigin hluti. Búa til kennslugögn, þrívíddarlíkön úr samsettum hlutum, skilti, form og skapandi verkefni. Innbyggða myndavélin og öryggisvarnirnar gera þær mjög öruggar í skólastofunni.
- Heimili og áhugafólk: Hanna persónulegar gjafir, skrautmuni, skartgripi og merkingar.
- Hönnuðir, handverksfólk og frumkvöðlar: Sérsniðnar gjafir, merkingar á vörur, framleiða sýnishorn, skartgripagerð, módel og vörulíkön, vinna á textíl og leðurvörur.
- Lítil og stærri fyrirtæki: Framleiða sérmerktar vörur, gjafavöru, umbúðaskreytingar og persónulegar vörur fyrir viðskiptavini.
Af hverju að kaupa FLUX vörurnar?
- Auðveld í notkun: Hugbúnaðurinn Beam Studio er frír, auðskiljanlegur og virkar á Windows, Mac, Linux og ChromeOS.
- Nákvæm myndavélastýring: HD myndavél sýnir efnið á skjánum svo þú getur afmarkað hönnunina nákvæmlega á þann stað sem þú vilt að vélin á að skera og grafa.
- Mikið öryggi: FLUX vélar eru fullkomlega lokaðar og stöðvast samstundis ef lokið er opnað eða ef eldur kviknar.
- Fjölbreytileiki efna: Vélarnar ráða við yfir 1000 mismunandi efni, þar á meðal við, leður, pappír, gler, stein, pappír og bylgjupappír, gúmmí, málma og margar gerðir af textíl.
- Aukahlutir: Hægt er að bæta við snúningseiningum fyrir merkingu á t.d. glös, einnig framlengingum fyrir þykkari hluti eða lofthreinsitækjum.
Áhugi á kynningu á FLUX lasertækjum?
Hefur þú áhuga á að kynna þér frekar FLUX lasertækjunum þá getur þú bókað kynningu hjá ykkur á virkum dögum milli kl. 10:00 til 14:00. Láttu okkur vita hvaða tímar eða dagar henta ykkur best.
Bókaðu kynningu á vörunum frá FLUX og sendu okkur póst á netfangið
[email protected]