BETZOLD Tónstafir í Boomwhackers®-litum

kr. 28.140

Þessar litríku hljóðpípur (handchimes) henta vel til notkunar í skólum, leikskólum og tónlistarskólum. Hver tónstafur samsvarar ákveðinni tónhæð og fylgir hinu þekkta litakerfi Boomwhackers® og því er sáraauðvelt að tengja nótur við liti á myndrænan hátt. Stafirnir hafa skýran og hreinan tón og auðvelt er að spila á þá.
Frábær leið til að kynnast tónum og takti. Tónstafirnir henta börnum frá 4 ára aldri og hægt er að spila á þá án nokkurrar forkunnáttu í tónlist. Þökk sé nákvæmri stillingu tónanna er hægt að nota þá í bland við Boomwhackers® eða önnur litakóðuð hljóðfæri. Tónstafirnir henta sérstaklega vel tónlistarkennurum, leikskólakennurum, uppalendum og iðjuþjálfum/meðferðaraðilum sem vilja kynna tónlist fyrir börnum og fullorðnum á leikandi hátt. Litríku bjöllurnar hjálpa börnum að læra nótur í gegnum leik og þjálfa samtímis taktskynið. Hvort sem þeir eru notaðir sem fyrstu skrefin í tónlist eða til að fylgja þekktum laglínum að þá verður tónsköpun að skemmtilegri upplifun.

Einstakir tónstafir (hæð x breidd): 18–23 x 6 cm
Rör þvermál: Ø 3 cm
Heildarþyngd: 1,46 kg

Á lager

Vörunúmer: VIN773617 Flokkur: Merkimiðar: , ,

Viðbótarupplýsingar

Þyngd 1400 g
Ummál 23 × 6 cm

vörumerki

Vinco - Betzold