Lýsing
Fjórhjólið er með stillanlegri foreldrastöng til að hjálpa barninu meðan það er að læra að hjóla. Einfalt að taka handfangið af þegar barnið er tilbúið að hjóla sjálft. Einfalt að aftengja fótstigin, hafa það fríhjólandi, þannig að barnið geti hvílt fætur á því á meðan því er ýtt áfram með handfanginu og þá hreyfast ekki pedalarnir. Einnig er hægt að festa stýrið.
Bjartir og fallegir litir á hjólinu og límmiðasett fylgir með svo barnið getur hannað útlit hjólsins. Handhæg karfa framan á stýrinu fyrir alls konar nauðsynleg leikföng. Frábært fjórhjól sem hentar fyrir ung börn sem eru að læra að hjóla með pedölum. Sætið er stillanlegt í 3 mismunandi stöður. Dekkin eru mjúk og hægt að hjóla hvort sem er inni eða úti.
Það er auðvelt að stíga pedalana og barnið lærir að ná tökum á að nota fótstigið til að koma sér áfram og það er með fullkomna stjórn á stýri og pedölum. Hjólin eru með lágum þyngdarpunkti sem tryggir betra jafnvægi og öryggi barnsins. Dekkin eru með góðu gripi og slitþoli, góða fjöðrun og það springur aldrei á dekkjunum. Fjórhjólin æfa jafnvægi og samhæfingu barnsins. Fjórhjólið vex með barninu því það er hægt að stilla stýri og sæti. Barnið getur bæði hjóla áfram og afturábak og stoppa á örfáum sekúndum.
Aldur 2 ára +
Stærð: 46 × 50 × 25 cm
Með pedölum
Hámarks þyngd notanda: 30 kg










