Lýsing
Elias er yndisleg nýfædd ungbarnadúkka sem er hönnuð til að ýta undir náið augnsamband. Alveg eins og með alvöru ungbörn þarf að styðja við höfuðið þegar dúkkunni er lyft upp og haldið er á henni. Yndisleg lítil dúkka til að hugsa um og knúsa.
Með sinn karakter og glaðlegu svipbrigði veitir dúkkan hlýju og öryggi og getur gefið eldri einstaklingi með heilabilun eða fullorðnum einstaklingi með þroskahömlun tilfinningu fyrir tilgangi, ábyrgð og skuldbindingu. Dúkkan er hönnuð til að efla samkennd, félagsfærni og umhyggjusemi hjá bæði börnum og fullorðnum og jafnframt hjálpa þær til við að styrkja tilfinningaleg tengsl.
Tilfinningadúkkan er gerð úr mjúku efni með fyllingu og er í raunstærð. Hún er í fötum sem hægt er að klæða í og úr. Heillandi augu hennar eru hönnuð til að halda stöðugu augnsambandi, sem eflir sterk tilfinningatengsl.
Það eru engin aldurstakmörk fyrir því hverjir geta haft gleði af þessum dúkkum og þær henta öllum aldurshópum, allt frá ungum börnum upp í aldraða. Dúkkurnar eru fyrst og fremst notaðar á hjúkrunar- og dvalarheimilum til að vekja samkennd hjá bæði yngra og eldra fólki.
Dúkkan getur setið sjálf er þær einnig notaðuð í starfi með börnum/fullorðnum með fötlun eða þroskahömlun, öldruðum eða á stofnunum þar sem hægt er að koma þeim eðlilega fyrir í opnu rými. Þessar dúkkur eru sérstaklega hannaðar og geta hjálpað börnum sem þurfa huggun og að róa sig, börnum með sérþarfir eins og ADHD, einhverfu og fyrir börn með kvíða. Einnig eru þessar dúkkur góðar fyrir eldri borgara með Alzheimerssjúkdóm og heilabilun.
Dúkkan hentar fyrir börn frá 3ja ára aldri og fullorðna
Má þvo við 40°C
Stærð: 50 cm
Þyngd: 800g













