RasKars – Bannmerki fyrir borgina
kr. 5.440
Gerðu ferðina með RasKars-snjallbílnum meira spennandi með 6 snjallkubbum. Bannað að beygja til vinstri? Þá beygir bíllinn til hægri! Bannað að beygja til hægri? Þá heldur hann til vinstri! Láttu bílinn stoppa, snúa við eða bættu við kubbi sem lætur hann velja beygju af handahófi og sjáðu hvert leiðin liggur næst!
RasKars-bílarnir skynja snjallkubba þegar þeir nálgast þá og bregðast sjálfkrafa við. Þannig bætast hjáleiðir, áskoranir og óvæntar uppákomur við hvert ævintýri.
QUBI RasKars er gagnvirkur leikur. Með innbyggðri RFID-tækni bregst bíllinn við snjallkubbum (Smart Blocks) og snjallspilum (Smart Cards) sem stýra akstursleið hans og hegðun. Börnin geta byggt sína eigin borg, búið til nýjar leiðir og uppgötvað hvernig mismunandi hlutir hafa áhrif á bílinn.
RasKars sameinar skapandi byggingarleik og snjalla tækni í skjálausum leik sem eflir ímyndunarafl, rökhugsun og lausnaleit.
Myndband -> Bannmerki fyrir RasKars snjallbíla
Ráðlagður aldur: Frá 4 ára.
Pakki inniheldur:
-1 Snjallkubbur – Bannað að beygja til vinstri
-1 Snjallkubbur – Bannað að beygja til hægri
-2 Snjallkubbar – Beygja af handahófi
-1 Snjallkubbur – Stopp
-1 Snjallkubbur – Snúa við
Fylgihlutir seldir sérstakleg: Snjallspil, bílaþvottastöð, brú með hreyfanlegum brúararmi, bannmerki, umferðarmerki og umferðarljós kalla fram ný viðbrögð hjá bílnum og gera hlutverkaleikinn enn líflegri.
Á lager