Viðarkubbar með gimsteinum – 10 stk

kr. 16.000

Viðarkubbar frá Guidecraft er þroskandi kubbasett fyrir börn frá 2ja ára aldri.

Viðarkubbar með kristölum frá Guidecraft eru einstakir byggingarkubbar sem sameina liti og ljós. Í hverjum kubbi er innfelldur, gegnsær kristall sem endurkasta og brjóta ljós. Þannig fá börnin tækifæri til að kanna samspil ljóss og lita og kynnast á einfaldan og skemmtilegan hátt undirstöðuatriðum eðlisfræðinnar.

Kubarnir eru úr endingargóðum viði og fylgja hefðbundnum stærðarhlutföllum einingakubba. Þeir nýtast bæði einir og sér og sem spennandi viðbót við hefðbundin byggingarkubbasett.

Eiginleikar:

  • 10 byggingarkubbar í mismunandi stærðum, formum og litum.
  • Hver kubbur inniheldur innfelldan, gegnsæjan gimstein.
  • Kubbar úr endingargóðum viði.
  • Endurkasta og brjóta ljós og vekja áhuga á litum og ljósfræði.
  • Samræmast stærðarhlutföllum hefðbundinna einingakubba.
  • Henta bæði einir og sér og með öðrum byggingarkubbum.

Stærð: Stærsti kubburinn er 14 × 7 × 3,6 cm. Sá minnsti er 7 × 7 × 3,6 cm.

Aldur: Frá 2 ára.

Settið inniheldur 10 viðarkubba

Á lager

Vörunúmer: GUIG6829 Flokkar: , Merkimiðar: , , , ,

Lýsing

Leikföng sem efla nám og þroska
Fræðandi leikföng frá Guidecraft eru hönnuð til að styðja við þroska barna á fyrstu árum ævinnar, vekja forvitni og hvetja til virks náms í gegnum leik og eigin reynslu.

Byggt á þekkingu og reynslu
Leikfangasettin eru þróuð í samstarfi við sérfræðinga, kennara og foreldra. Hönnunin tekur mið af eðlislægri leikhegðun barna og því hvernig þau læra og uppgötva heiminn í gegnum leik.

Gæði sem endast
Guidecraft leggur áherslu á vandaða hönnun og leikföng sem endast árum saman. Auðvelt er að þrífa vörurnar og þær henta því vel bæði á heimilum og í leik- og grunnskólum. Með áherslu á endingu og gæði er jafnframt dregið úr óþarfa sóun.

Viðbótarupplýsingar

Þyngd 1360 g
Ummál 18 × 18 × 18 cm

vörumerki

Guidecraft