Skip to main content

Skiptiborð með tröppum

Skiptiborð með tröppum

Barnið getur sjálft gengið upp tröppurnar og engin þörf á að lyfta barninu fyrir bleyjuskipti. Skiptiborðið auðveldar störf starfsfólks leikskóla.
Kennari getur losað tröppurnar með einu handtaki. Tröppum er haldið niðri með fæti. Tröppurnar falla svo aftur sjálfkrafa tilbaka á sinn stað svo börnin komist ekki í þær án eftirlits. Skiptiborðið er á hjólum og því auðvelt að færa það úr stað.
Skiptiborðið er vel skipulagt, borðið með háum köntun fyrir öryggi barnsins, það er bólstrað og þægilegt fyrir barnið. Geymslupláss er mikið í einingunni, skápur undir borðinu og hægt að læsa skápahurðum.
Bleyjuskiptiborð með geymsluplássi
Ráðlagður aldur: 0-4 ára

Sendu tölvupóst á [email protected] til að panta.

Vörunúmer: COMG268 Flokkur: Merkimiði:

Lýsing

Upplýsingar um vöru
Mál: Hæð 95 cm, Breidd; 112 cm, Dýpt; 56 cm
Stærð þrepa: 17 cm á milli þrepa, 37 cm breið, 50 cm hæð efst á þrepinu.
Endingargott, bólstrað og saumlaust leguborð og auðveld í þrifum.
Viðurinn er húðaður með glærri, barnvænni áferð.
Skiptiborðið er með hjólum sem auðvelt er að fela niður og gera borðið kyrrstætt.
Ráðlagður aldur: 0-4 ára

vörumerki

Community Playthings

Börnin í fyrsta sæti

Börn vilja leika sér. Þau vilja frelsi til að uppgötva, ímynda sér og finna upp á nýjum hlutum. Að hlaupa, hreyfa sig og dansa. Að reyna og að ná árangri. Þau vilja vera á stað til að deila með vinum sínum. Þau þurfa stað þar sem þau geta verið ein til að lesa eða hugsa, eða bara vera til. Hjá Community Playthings leyfum við einkunnarorðunum okkar, "Börnin í fyrsta sæti" að leiða okkur þegar við hönnum, smíðum og búum til traust viðarhúsgögn og leikföng og leiktæki sem styðja börnin ykkar í leik og námi. Vörur okkar eru vísvitandi einfaldar og opnar, sterkar og fallegar til að veita börnunum þínum frelsi til að nota ímyndunarafl sitt, til að þroskast og vaxa.

Gerðar til að endast

Vörur Community Playthings eru sterkar, öflugar og hannaðar fyrir börn til daglegrar notkunar. Til að tryggja að allar vörur standist 15 ára ábyrgðina notum við einungis hágæða efni, sem tryggir langan endingartíma, aukið verðmæti vörunnar og minni rekstrarkostnað til lengri tíma. Community Playthings notar eingöngu alvöru, traustan við – ekki gervivið eins og MDF. Utandyra notum við Accoya®, sérunnan og gagnvarinn við sem er meðal annars notaður í þil og palla. Efnið er eitt það besta sem völ er á og hannað til að þola daglega notkun í leikskólaumhverfi. Sileather™, sem er notað á öll mjúku sætin á okkar vörum er hægt að hreinsa með alhliða sótthreinsiefni. Sækja bækling frá Community Playthings. um Outlast útikubbar og útihúsgögn um Roomscapes skápar og skilrúm um skynjunarleikur (sullukar, leikborð) um kennaraborð um bókaskápar og bókavagn um borð og stólar um kubbar um hlutverkaleikur um ToddleBoxes um fataherbergi um hvíldarherbergi um málning um hreyfing um Nooks