Leikfangaeldhús eyja – lágt

Lág eldhúseyja (Low Kitchen Island)
Hönnunin á þessari eldhúseyju hvetur til samskipta milli barna. Borðplötur eru í mismunandi hæðum og miðast við þarfir barna og gerir börnum kleift að tengjast, deila og leika á móti hvort öðru. Lága eldhúseyjan hentar fullkomlega fyrir börn sem eru að stíga sín fyrstu skref.
Leikfangaeldhúsið er hannað þannig að börnin geta leikið sér með það frá öllum hliðum. Leikfangaeldhúsið er með eldavél, vask með blöndunartækjum, skáp, hurðir og hillur. Allt eldhúsið er úr slitsterku og endingargóðu efni og eldhúsið stenst strangar öryggiskröfur. Eldhúsið hentar mjög vel fyrir t.d. leikskóla.

Eldhúseyjan er frá Community Playthings og afhendist samsett .

Sendu tölvupóst á [email protected] til að panta.

Ráðlagður aldur: 18–36 mánaða

Stærð:
Hæð: 41 cm
Breidd: 70 cm
Lengd: 113 cm
Þyngd: 44 kg

Lýsing

The kitchen centre contains everything you need for your pretend kitchen play. All Educo kitchen cabinets are equipped with safety hinges which have a built-in shock absorber.Features 4 black hot plates, cooker controls, an oven, a microwave and a sink. Dimensions: 73 x 37 x 95 cm. Height counter top: 62 cm.

Viðbótarupplýsingar

Þyngd 8000 g
Ummál 73 × 37 × 95 cm

vörumerki

Community Playthings

Börnin í fyrsta sæti

Börn vilja leika sér. Þau vilja frelsi til að uppgötva, ímynda sér og finna upp á nýjum hlutum. Að hlaupa, hreyfa sig og dansa. Að reyna og að ná árangri. Þau vilja vera á stað til að deila með vinum sínum. Þau þurfa stað þar sem þau geta verið ein til að lesa eða hugsa, eða bara vera til. Hjá Community Playthings leyfum við einkunnarorðunum okkar, "Börnin í fyrsta sæti" að leiða okkur þegar við hönnum, smíðum og búum til traust viðarhúsgögn og leikföng og leiktæki sem styðja börnin ykkar í leik og námi. Vörur okkar eru vísvitandi einfaldar og opnar, sterkar og fallegar til að veita börnunum þínum frelsi til að nota ímyndunarafl sitt, til að þroskast og vaxa.

Gerðar til að endast

Vörur Community Playthings eru sterkar, öflugar og hannaðar fyrir börn til daglegrar notkunar. Til að tryggja að allar vörur standist 15 ára ábyrgðina notum við einungis hágæða efni, sem tryggir langan endingartíma, aukið verðmæti vörunnar og minni rekstrarkostnað til lengri tíma. Community Playthings notar eingöngu alvöru, traustan við – ekki gervivið eins og MDF. Utandyra notum við Accoya®, sérunnan og gagnvarinn við sem er meðal annars notaður í þil og palla. Efnið er eitt það besta sem völ er á og hannað til að þola daglega notkun í leikskólaumhverfi. Sileather™, sem er notað á öll mjúku sætin á okkar vörum er hægt að hreinsa með alhliða sótthreinsiefni. Við bjóðum fría og faglega ráðgjöf við hönnun og skipulagningu. Hafðu samband í síma 587 8700 eða sendu póst á netfangið: [email protected] Sækja bækling frá Community Playthings. um Outlast útikubbar og útihúsgögn um Roomscapes skápar og skilrúm um skynjunarleikur (sullukar, leikborð) um kennaraborð um bókaskápar og bókavagn um borð og stólar um kubbar um hlutverkaleikur um ToddleBoxes um fataherbergi um hvíldarherbergi um málning um hreyfing um Nooks