Skip to main content

Community Playthings

Börnin í fyrsta sæti

Börn vilja leika sér. Þau vilja frelsi til að uppgötva, ímynda sér og finna upp á nýjum hlutum. Að hlaupa, hreyfa sig og dansa. Að reyna og að ná árangri. Þau vilja vera á stað til að deila með vinum sínum. Þau þurfa stað þar sem þau geta verið ein til að lesa eða hugsa, eða bara vera til.

Hjá Community Playthings leyfum við einkunnarorðunum okkar, „Börnin í fyrsta sæti“ að leiða okkur þegar við hönnum, smíðum og búum til traust viðarhúsgögn og leikföng og leiktæki sem styðja börnin ykkar í leik og námi.
Vörur okkar eru vísvitandi einfaldar og opnar, sterkar og fallegar til að veita börnunum þínum frelsi til að nota ímyndunarafl sitt, til að þroskast og vaxa.

Gerðar til að endast

Vörur Community Playthings eru sterkar, öflugar og hannaðar fyrir börn til daglegrar notkunar. Til að tryggja að allar vörur standist 15 ára ábyrgðina notum við einungis hágæða efni, sem tryggir langan endingartíma, aukið verðmæti vörunnar og minni rekstrarkostnað til lengri tíma.

Community Playthings notar eingöngu alvöru, traustan við – ekki gervivið eins og MDF. Utandyra notum við Accoya®, sérunnan og gagnvarinn við sem er meðal annars notaður í þil og palla. Efnið er eitt það besta sem völ er á og hannað til að þola daglega notkun í leikskólaumhverfi. Sileather™, sem er notað á öll mjúku sætin á okkar vörum er hægt að hreinsa með alhliða sótthreinsiefni.

Sækja bækling frá Community Playthings.
um Outlast útikubbar og útihúsgögn
um Roomscapes skápar og skilrúm
um skynjunarleikur (sullukar, leikborð)
um kennaraborð
um bókaskápar og bókavagn
um borð og stólar
um kubbar
um hlutverkaleikur
um ToddleBoxes
um fataherbergi
um hvíldarherbergi
um málning
um hreyfing
um Nooks